Skautahöllin í Egilshöll

Skautahöllin í Egilshöll opnaði árið 2004 og var eitt af fyrstu einingum sem opnað var í Egilshöll.

Egilshöll er 24.000 fermetra íþrótta-, tónleika- og kvikmyndahöll í Grafarvogi, Reykjavík. Hún geymir 10.800 fermetra knattspyrnusal, auk skautahallar og skotævingarsvæðis. Skautahöll hennar er heimavöllur skautadeilda Fjölnis.

Skautasvellið í Egilshöll býður upp á skemmtilega skautaferðir fyrir hópa hvort sem um er að ræða skólahópa, vinahópa eða vinnuhópa.  

Færst hefur í vöxt að vinnuhópar koma í Egilshöllina í hópefli.

Hægt er að panta pizzur en taka þarf veitingapantanir sérstaklega fram.

Verðið er 2000,- á mann. Innifalið er aðgangseyrir, skautar, hjálmur, pizza og gos.

Fyrir þá sem koma með sína eigin skauta kostar 1650,- á mann.

Afsláttur miðast við að greitt sé fyrir allan hópinn í einu.