Þessi grein birtist í Morgunblaðinu þann 21.10.2023
Skautaíþróttir í almannarými
Senn gengur vetur í garð hér á landi. Leggst þá niður notkun fótboltavallanna sem tekið hafa á móti börnum og ungmennum í sumar og við taka vetraríþróttir ýmis konar. Aðstaða utanhúss fyrir vetraríþróttir er einn af þeim hlutum sem sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins hafa ekki sinnt af kostgæfni fyrir utan skíðaíþróttina þar sem þau hafa sameiginlega komið að uppbyggingu glæsilegrar íþróttaaaðstöðu í Bláfjöllum.
En hvað með íþróttagreinar sem stundaðar eru á skautum?
Til þessa hefur eingöngu Reykjavík verið með aðstöðu til skautaíþrótta í almannarými á Tjörninni sem því miður hefur verið stopult að svellinu sé haldið við.
Hér áður fyrr átti Borgin veg og vanda að því að fleyta vatni á Melavöllinn sáluga sem var vel sóttur á köldum vetrardögum og fyrir það þóttu „hittingar“ á Tjörninni, þar sem skautað var undir tónlist og hægt að kaupa heitar veitingar, tilefni til stefnumóta og heilbrigðar hreyfingar.
Síðustu misseri hafa minni sveitarfélög á landsbyggðinni komið sér upp aðstöðu til skautaíþrótta úti við ýmist á tjörnum eða manngerðum svæðum og má þar fremsta nefna Flateyri og Dalvík sem lyft hafa Grettistaki í uppbyggingu og komið sér upp skauta- og hjálmaeign sem almenningi býðst til brúks.
Mannvirkjamál ísíþrótta á höfuðborgarsvæðinu eru í algjörum ólestri. Tvær skautahallir eru í Reykjavík sem þjóna iðkendum frá öllu svæðinu eða samtals 230 þúsund manns.
Anna þær engan vegin eftirspurn eftir æfingatímum þeirra íþróttafélaga sem bjóða upp á ísíþróttir og komast færri að en vilja. Að auki deila íþróttafélögin ístímanum með almenningi.
Þarfagreining skautamála í nágrannaríkjum okkar telur að ein skautahöll eigi að vera á hverja 25-30 þúsund íbúa. Það þýðir að skautahöll ætti að vera í hverju þeirra bæjarfélaga; Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar auk a.m.k. tveggja til viðbótar í Reykjavík. Þessi nágrannasveitarfélög Reykjavíkur hafa ekki gert neina tilraun til að þróa iðkun ísíþrótta innan bæjarmarka sinna þótt margir möguleikar séu í stöðunni eins og að koma upp ísíþróttaaðstöðu utanhúss til að byrja með á Vífilsstaðavatni, Urriðavatni, Bessastaðatjörn, Elliðavatni og Hvaleyrarvatni svo eitthvað sé nefnt en einnig gætu þessi bæjarfélög komið sér upp steyptum plötum með kælikerfi til vetrariðkunar sem hægt væri að breyta í go-cart, hjólaskautaaðstöðu eða markaðstorga yfir sumartímann.
Í Reykjavík mætti reglubundið og með alvöru markmiðssetningu koma upp stemmingu á Tjörninni á köldum vetrardögum og ísgerð þar sinnt almennilega sem nýst gæti listskauturum og skautahlaupurum. Hægt væri að koma upp aðstöðu til að skipta um skóbúnað og hugsanlega að hafa kakósölu við tjarnarbakkann og boðið upp á tónlist til að auka á stemminguna líkt og gert var í denn. Álíka væri hægt að koma upp við Rauðavatn.
Viljinn þarf að vera fyrir hendi og honum þarf að fylgja eftir með gjörðum. Því er skorað á Reykjavíkurborg og bæjarfélögin Kópavog, Hafnarfjörð og Garðabæ að koma upp aðstöðu til iðkunar ísíþrótta í almannarými til vetraríþrótta sem fyrst. Skautafólk er orðið langþreytt á áhugaleysi borgaryfirvalda og nágrannasveitafélaganna í ísíþróttamálum hvort sem er fyrir íþróttafólk þessara íþrótta eða almenning.
Við erum jú frá ÍS-landi og ættum að vera framar í iðkun ís-íþrótta en við því miður erum.